Við erum á Facebook
Skráðu þig í félagið
Sögulegt ágrip
Forsaga: Haraldur Magnússon og Hörður Bergmann ásamt Guðrúnu Halldórsdóttur unnu að undirbúningi stofnunar félagsins. 8. október 1968 var haldinn undirbúningsfundur og mættu 25 manns á hann. Stofnfundurinn var síðan haldinn 14. nóvember í Þjóðleikhúskjallaranum. Stofnfélagar voru 32. Fundarstjóri var Ólafur Jens Pétursson. Ingólfur A. Þorkelsson var kjörinn fyrsti formaður félagsins en hann hafði mikla reynslu af félagstörfum. Ingólfur lést í janúar 2005.
Byrjað var á að kynna félagið bæði innan lands og utan. Sótt var um fé til að útdeila styrkjum. Fréttabréf hóf fljótlega göngu sína og efnt var til samstarfs við aðra aðila s.s. Norræna húsið. 1977 var stofnað til samstarfs við málakennara á hinum Norðurlöndunum og árið 1980 var lagður grunnur að STÍL, samstökum tungumálakennara á Íslandi. Frá 1982 hefur félagið staðið fyrir námsferðum til Danmerkur og námskeiðum á Schæffergården. Þá hófst líka blómlegt samstarf við Nordspråk.
Félagið hefur frá upphafi tekið þátt í mótun námskrár og ýmis konar starfsemi sem varðar mótun dönskukennslu á Íslandi ásamt ráðgjöf og samstarfi við ýmsa aðila.
Í fyrstu sátu 5 manns í stjórn og tveir í varastjórn þessu var svo breytt í 7 manna stjórn um 1996 – 8. Sú regla er höfð að menn sitji almennt ekki lengur í stjórn en 5 ár í senn og að formennska sé til skiptis í höndum grunn- og framhaldsskólakennara. Oddafulltrúinn skiptist einnig á milli skólastiga. Heimild: Guðrún Halldórsdóttir, grein í Málfríði 1993
Formenn félagsins hafa verið: